Glöð Jórunn glöð á svip þegar mannfjöldinn í Iðnó fagnar henni síðastliðinn miðvikudag. MYND Sigtryggur Ari
„Ég er engin viðtalskona því mér dettur aldrei neitt í hug nema þegar enginn hlustar. Þá dettur manni voða mikið í hug. Tónlistin er eiginlega mitt mál,“ segir Jórunn Viðar, tónskáld og píanóleikari, þegar blaðamaður kíkir í stutta heimsókn til hennar á Droplaugarstaði, daginn eftir að hún hlaut heiðursverðlaun Menningarverðlauna DV 2009 sem afhent voru síðastliðinn miðvikudag. „Það eina sem vekur athygli fólks er eitthvað fáránlegt,“ heldur Jórunn áfram. „En ég er nefnilega svo óskaplega hversdagsleg.“
Hún segir þó fleiri kosti fylgja því að vera svona hversdagsleg. „Maður þekkir fólk betur á eftir því það geta allir talað um hversdagsleika. Til dæmis nefið á mér, hvort það sé stórt eða lítið. Og hvort tennurnar í mér séu skakkar,“ segir Jórunn og þá lætur Katrín, dóttir hennar sem situr með blaðamanni og tónlistarkonunni frækna, í sér heyra.
„Þær verða að passa mig stelpurnar,“ segir Jórunn og hlær. „Ég er nefnilega svo óskaplega ófeimin. Það er það sem gengur að mér.
En ef þeir sem að búa til músík eru feimnir kemur ekkert út. Alveg eins og ef þú ert að segja einhver spakmæli og þau eru svo hversdagsleg þá tekur enginn eftir þeim. Þetta geta samt verið spökustu mæli fyrir því.“
Jórunn Viðar hlaut heiðursverðlaun Menningarverðlauna DV 2009 þegar verðlaunaafhendingin fór fram í Iðnó síðastliðinn miðvikudag. Tónlistarferill hennar spannar hátt í sjö áratugi en hún er meðal annars höfundur lagsins Það á að gefa börnum brauð og tónlistarinnar við kvikmyndina Síðasti bærinn í dalnum.
Lesið viðtalið við Jórunni í nýjasta helgarblaði DV sem kom út í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar