Kaupréttarsamningar Jóns Sigurðssonar við Landsbankann var keyptur upp af FL Group. Hugmyndin var þá sú að Jón ætti ekki að tapa á því að byrja að vinna hjá FL Group.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri FL Group, fékk fleiri hundruð milljónir króna frá félaginu þegar hann var ráðinn framkvæmdastjóri þar árið 2005. Nákvæm upphæð sem Jón fékk liggur ekki fyrir en ein heimild DV segir að upphæðin nemi um 500 milljónum króna. Önnur heimild segir að upphæðin nemi á bilinu 150 til 200 milljónum króna. Ljóst er því að upphæðin er á bilinu 150 til 500 milljónir króna. Greiðslunum til Jóns frá FL Group var dreift yfir nokkurra ára tímabil.
Jón var starfsmaður Landsbankans áður en hann varð framkvæmdastjóri, aðstoðarforstjóri og síðar forstjóri FL Group í árslok 2007. FL Group var almenningshlutafélag á þeim tíma sem gengið var frá samningnum við Jón sem tryggði honum milljónirnar.
Jón er framkvæmdastjóri Stoða í dag, en félagið hét áður FL Group. Félagið heldur utan um eignir eins og hluti í Tryggingamiðstöðinni og hollenska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco.
Ástæðan fyrir greiðslunni til Jóns var sú að verið var að kaupa upp kaupréttarákvæði sem hann hafði unnið sér inn á meðan hann var starfsmaður Landsbankans, að sögn Júlíusar Þorfinnssonar, upplýsingafulltrúa Stoða. Samskipti DV við Jón fóru fram í gegnum Júlíus þar sem Jón Sigurðsson vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um málið. Júlíus segir að greiðslunum til Jóns hafi verið dreift yfir nokkurra ára tímabil.
Júlíus segir að Jón hafi sagt að upphæðin sem hann fékk hafi ekki verið 500 milljónir heldur á milli 150 og 200 milljónir. „Hvaða frétt er það þó að einhver maður hafi skipt um vinnu fyrir fjórum til fimm árum og að áunnin réttindi hans á fyrri vinnustað hafi verið bætt upp þegar hann skipti um vinnu? Það er mikilvægt að menn átti sig á að þetta var út af kaupréttarákvæðum í Landsbankanum,“ segir Júlíus.
Glitnir gerði sams konar samkomulag við Lárus Welding þegar hann var fenginn yfir til bankans frá Landsbankanum árið 2007. Greiðslurnar til hans námu 300 milljónum króna og rökstuddi stjórn Glitnis greiðsluna með því að Lárus mætti ekki tapa á vistaskiptunum og því þyrfti að greiða honum í reiðufé það sem hann ætti inni hjá Landsbankanum í formi kaupréttar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna