Hannes Smárason, sem gjarnan er kenndur við FL Group, var einn af gestunum í veislu Landsbankans í Courchevel í Frönsku ölpunum í apríl árið 2007. Mynd úr veislunni sem orðin er fræg var birt á vefsíðunni Eyjunni fyrir skömmu og nafngreindi DV nær alla sem á myndinni voru.
Meirihluti þeirra var starfsmenn Landsbankans og Baugs og þótti myndin sýna afar vel fram á þau nánu tengsl sem voru á milli Landsbankans og Baugs á árunum fyrir hrunið enda er bankinn stærsti kröfuhafi félagsins.
Nokkra athygli vakti einnig að kona Hannesar Smárasonar var á myndinni góðu en hvergi sást tangur né tetur af FL-manninum sjálfum og vöknuðu spurningar um hvort hann hefði verið í gleðinni ásamt konu sinni. Nú hefur það fengist staðfest að Hannes var líka á svæðinu en af einhverjum ástæðum var hann ekki fangaður á myndina góðu sem nánast er dæmd til að verða að þekktu minni um útrásina.
Ekki þarf hins vegar að koma á óvart að Hannes hafi verið í gillinu þar sem margir af hans nánustu félögum voru þar einnig, meðal annars Jón Ásgeir Jóhannesson og Magnús Ármann auk þess sem Hannes naut lánafyrirgreiðslu frá Landsbankanum líkt og þeir tvímenningar.
Þá herma heimildir DV einnig að þrátt fyrir að kona Lárusar Welding, sem var starfsmaður Baugs, hafi verið á myndinni hafi hann ekki verið í för í þetta skipti.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna