ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Gylfi: „Orðspor okkar á hraðri niðurleið“

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
14:31 › 12. mars 2010
Gylfi Arnbjörnsson og Vilhjálmur Egilsson eru sammála um að ljúka verði Iceave-deilunni sem fyrst því annars skapist afar alvarlegt ástand.

Gylfi Arnbjörnsson og Vilhjálmur Egilsson eru sammála um að ljúka verði Iceave-deilunni sem fyrst því annars skapist afar alvarlegt ástand. Mynd: Róbert Reynisson

Forystumenn vinnumarkaðarins standa agndofa gagnvart slakri frammistöðu þingsins og krefjast þess að Icesave-deilan verði leyst sem fyrst. Fyrr opnist ekki erlendir fjármálamarkaðir fyrir Íslandi og það skapi margvíslegar hættur og tafir á uppbyggingu. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir óyggjandi eftir ferð til útlanda í vikunni að orðspor þjóðarinnar og traust til hennar erlendis sé enn á niðurleið.

Óþol ágerist innan þings og meðal kjósenda gagnvart langvinnum töfum við lausn Icesave-deilunnar. Forystumenn atvinnurekenda og launafólks telja að í algert óefni stefni vegna látlausra deilna við nágrannalöndin og aðgerðaleysis við að byggja upp lánstraust þjóðarinnar og aðgang hennar að erlendu lánsfé.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir frekari tafir válegar í meira lagi.

„Ég var að koma að utan og það verður að viðurkennast að orðspor okkar er á hraðri niðurleið alls staðar í kringum okkur. Það tekur þjóð mjög langan tíma að hreinsa af sér svona stimpil. Þetta ástand verður síðan að áþreifanlegum vanda fólks vegna aukins atvinnuleysis, þverrandi tekna og kaupmáttar og minnkandi þjónustu hins opinbera. Þetta birtist sem miklu hærri reikningur en sá skelfilegi reikningur sem hrun fjármálakerfisins skilur eftir sig með falli Seðlabankans og Icesave-skuldbindingunum.“

Gylfi segir að krafa ASÍ og aðildarfélaganna sé að þingið taki upp hanskann fyrir þjóðina en láti af hráskinnaleik í Icesave-málinu. Þetta háttalag þingmanna hefur falist í því að finna sér stöðu í pólitískum hráskinnaleik. Krafan er að langtímahagsmunir þjóðarinnar verði teknir fram fyrir í þessari þráskák og málinu verði lokið. Því miður hefur þessi hráskinnaleikur, og ég verð að segja lýðskrum sem þrifist hefur í kringum þetta mál, talið hluta þjóðarinnar trú um að það sé hægt að losna undan þessum skuldbindingum alfarið. Því miður er það ekki þannig.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.