Lögreglustjórar stærstu lögregluumdæma landsins eru sammála um að heimildir til forvirkra rannsóknaraðgerða sé mjög mikilvægur þáttur í starfi lögreglunnar til að berjast við alþjóðlega og skipulagða glæpastarfsemi. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir að þessar tillögur verði skoðaðar innan ráðuneytisins.
„Að mínu mati er mjög varasamt að einblína á eina lausn og því skiptir máli að vinna að fleiri lausnum á þessum vanda. Ég hef rætt það við lögreglustjóra að gerður verði heildstæður aðgerðapakki sem nýtist í baráttunni gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi. Ég stefni að því að þessi áætlun verði tilbúin í vor, því við verðum að vinna nokkuð hratt í þessum málum.“
Vill banna Vítisengla
Til að fylgja þessu eftir hefur dómsmálaráðherra óskað eftir því að fá sérstaka kynningu á alþjóðlegri glæpastarfsemi frá lögregluyfirvöldum. „Ég tel það einnig mjög gagnlegt að allsherjarnefnd alþingis fái slíka kynningu. Það er brýnt að lögreglan segi okkur frá hættunni, að því marki sem hún getur því það verða allir að gera sér grein fyrir alvarleikanum. Þetta er enginn leikur og við erum ekkert að tala um einhverja menn á mótorhjólum sem eru að skemmta sér á þjóðvegum,“ segir Ragna og á þar við Vítisengla.
„Í stjórnarskránni er ákvæði sem segir að það megi leysa upp félög sem hafi ólögmætan tilgang, en að sama skapi er hér félagafrelsi sem eru grundvallarmannréttindi þannig að þetta er flókið. Stjórnvöld geta því leyst upp félög sem hafa ólögmætan tilgang en það er ekkert sem segir til um það hvernig eigi að gera það. Við erum því að athuga hvort það þurfi löggjöf þegar að þeim degi kemur að það þurfi að grípa til þessa ákvæðis. Ég á von á greinargerð um þetta atriði 15. mars um þann part sem lýtur að banni. Danir hafa komist að þeirri niðurstöðu að það sé ekki hægt að beita þessu ákvæði en við viljum gera okkar eigin athugun á því.“
johanneskr@dv.is





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir