Eiríkur er í sárum vegna brunans en hann gleðst þó yfir því að hafa eignast barnabarn fyrir skemmstu. Mynd Gunnar Gunnarsson
„Eins kaldhæðnislegt og það er, þá fórum við með öll hljóðfærin okkar þangað á mánudag. Á nokkrum mínútum er það allt horfið; trommurnar, bassaboxin og hljóðfærin,“ segir tónlistarmaðurinn Eiríkur Hauksson.
Eldur kom upp í Røed Farm-hljóðverinu í Noregi aðfaranótt fimmtudags þar sem Eiríkur hefur að undanförnu verið að taka upp efni fyrir væntanlega plötu með hljómsveit sinni Magic Pie.
Eiríkur segir frá þessu á bloggsíðu sinni og bætir við að sem betur fer hafi upptökurnar ekki glatast í brunanum þar sem búið var að útbúa varaeintök. Eiríkur sér þó ljósið í myrkrinu.
„Það er alltaf ljós við enda ganganna. Við þurfum líklega að halda vinnu okkar áfram í öðru hljóðveri en það er svo sem lítið mál. Verra er að við getum ekki undirbúið okkur jafn vel fyrir væntanlega tónleika,“ segir Eiríkur en þeir fyrstu áttu að fara fram í Moss í Noregi þann 31. mars og svo þann annan apríl í spænsku borginni La Coruna. Segir Eiríkur að fresta þurfi þeim tónleikum um óákveðinn tíma.
„Það mun taka einhvern tíma að finna ný og rétt hljóðfæri og eiga við tryggingarnar,“ segir Eiríkur sem hefur þó yfir ýmsu að gleðjast þessa dagana. Hann varð afi fyrir skemmstu þegar elsta dóttir hans eignaðist strák.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna