Ungur Þjóðverji var handtekinn í Þýskalandi á dögunum þegar kærastan hans tilkynnti að verið væri að brjótast inn í íbúðina þeirra. Stúlkan var ein heima þegar hún heyrði umgang á svölunum skömmu eftir miðnætti kvöld eitt í vikunni.
Stúlkan taldi að þarna væri innbrotsþjófur á ferð og hringdi því umsvifalaust á lögregluna. Lögregla var fljót að bregðast við og örfáum mínútum síðar var hún komin á vettvang. Komu lögregluþjónarnir auga á ungan mann á svölunum sem var að reyna að komast inn í íbúðina.
Um leið og maðurinn varð var við lögregluna stökk hann niður af svölunum og reyndi að flýja á hlaupum. Skildi hann eftir rauðvínsflösku og blómvönd á svölunum þegar hann flúði. Um leið og hann var handtekinn útskýrði hann fyrir lögreglu hver raunverulegur tilgangur hans var – að koma elskunni sinni á óvart.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung