ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Detroit á leið til glötunar: Þar seljast hús á 1.250 krónur

21:05 › 12. mars 2010
Hræódýrar fasteignir. Þessi sjón er algeng í Detroit þessa dagana. Dæmi eru um að hús seljist á undir þúsund krónur.

Hræódýrar fasteignir. Þessi sjón er algeng í Detroit þessa dagana. Dæmi eru um að hús seljist á undir þúsund krónur.

Eitt sinn þótti það eftirsóknarvert að búa í Detroit, stærstu borg Michigan-ríkis, í Bandaríkjunum. Nú er sá tími liðinn og borgin aðeins skugginn af sjálfum sér; efnahagurinn er í rúst, glæpatíðni er há og borgin sem eitt sinn var nefnd höfuðborg bílaiðnaðarins siglir hraðbyri til glötunar.

Tim Prophit er fasteignasali í Detroit og man hann tímana tvenna. Efnahagshrunið sem hófst árið 2007 hefur farið illa með borgina og hafa fjölmargir íbúar neyðst til að sjá á eftir húsnæðum sínum í hendur banka- og lánastofnana. Hann segir að dæmi séu um eignir sem seljast á aðeins tíu dali, eða 1.250 krónur íslenskar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri heimildamynd sem sýnd verður á BBC 2 annað kvöld. Myndin ber heitið Requim for Detroit og fjallar meðal annars um hrunið á fasteignamarkaðnum í borginni.

Prophit starfar fyrir fasteignafyrirtækið The Bearing Group sem sér meðal annars um að koma eignum banka- og lánastofnana í verð. Hann segir að eignir sem metnar eru á tugi milljóna seljist þessa dagana aðeins fyrir brot af þeirri upphæð, allt frá nokkur hundruð krónum upp í nokkur hundruð þúsund. Á síðasta ári seldi fyrirtæki hans 394 íbúðarhús sem öll seldust undir þúsund dollurum, eða 125 þúsund krónum.

Hann segir að sum hverfi séu þó verri en önnur, til að mynda hverfi sem var vettvangur bíómyndarinnar Eight Mile með rapparanum Eminem í aðahluthverki.

„Þessi tiltekni borgarhluti hefur fengið neikvæða umfjöllun á undanförnum árum. Það má rekja til myndarinnar Eight Mile,“ segir hann og bætir við að það hverfi sé talsvert frá miðborginni. Á tímum þar sem bensínverð er tiltölulega hátt og á stað þar sem glæpatíðni er há sé það ekki söluvænlegt.

Þó að eignirnar seljist þessa dagana fyrir lítinn pening er þó ekki um neina kofa að ræða. Mörg húsanna eru þó vissulega komin til ára sinna en þau eru mörg hver rúmgóð og vel með farin. Mörg þeirra standa þó tóm og til að halda fíkniefnaneytendum og heimilislausum frá þarf að negla fyrir gluggana. Til marks um verðfall fasteigna í borginni má benda á, að fyrir fimm árum var meðalverð íbúðarhúsa í borginni um 12,5 milljónir króna. Nú er það hinsvegar komið niður í um eina og hálfa milljón króna.

„Detroit er borg í hnignun,“ segir Prophit en þar er tíðni atvinnuleysis einna hæst í Bandaríkjunum, eða 17,7 prósent.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.