ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Björgólfur sleikir sárin

09:10 › 12. mars 2010
Björgólfur ver miklum tíma heima hjá sér með konu sinni, Þóru Hallgrímsson, og fjölskyldu sinni. Hann er dapur yfir örlögum sínum.

Björgólfur ver miklum tíma heima hjá sér með konu sinni, Þóru Hallgrímsson, og fjölskyldu sinni. Hann er dapur yfir örlögum sínum.

Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi stjórnarformaður og aðaleigandi Landsbankans, er í biðstöðu um þessar mundir og sleikir enn sár sín eftir bankahrunið mikla árið 2008. Björgólfur er dapur í bragði yfir örlögum sínum og yfir bankahruninu. Hann bíður eftir því að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis komi út en ráðgert er að það verði síðar í þessum mánuði. Þetta segir aðili sem er nákominn Björgólfi.

Björgólfur ræddi við nefndina um nokkur mál og er nokkuð ljóst að framtíð hans veltur um margt á því að ekki verði felldur áfellisdómur yfir honum og störfum hans í Landsbankanum í skýrslunni. Björgólfi hefur alltaf verið mikið í mun að vera með gott orðspor á Íslandi og sanna sig hér á landi og var það meðal annars þess vegna sem hann keypti Landsbankann til að byrja með.

Björgólfur mun hafa dvalið mikið heima hjá sér síðustu mánuði og unnið mikið í sjálfum sér og málum tengdum því uppgjöri sem hann stendur nú frammi fyrir. Margir fjölmiðlar hafa reynt að ná tali af Björgólfi á síðastliðnu ári en hann hefur ekki veitt þeim viðtöl frá því hann ræddi við Kastljós Ríkissjónvarpsins og Morgunblaðið í hruninu haustið 2008. Hann hefur nánast lokað sig af samkvæmt því sem heimildir DV herma.

Björgólfur mun gera mikið af því að hitta fjölskyldu, vini og kunningja sem hann hefur kynnst á lífsleiðinni og ræða við þá um daginn og veginn og stöðuna í samfélaginu og útskýra sína hlið á þeim málum í hruninu sem tengjast honum. Björgólfur mun vera nokkuð eftir sig vegna hrunsins og má ætla að hann sé smeykari við skýrslu rannsóknarnefndarinnar en margir aðrir auðmenn um þessar mundir. Þetta ræðst af því að hann var bæði eigandi og stjórnarformaður Landsbankans og ber því meiri formlegri ábyrgð en til dæmis Björgólfur sonur hans.

Fjallað er um stöðu Björgólfs Guðmundssonar í helgarblaði DV í dag og reynt að varpa ljósi á hvernig lífi hans er háttað nú um stundir



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.