Eins og Baltasar Kormákur viðurkennir í viðtali við helgarblað DV í dag var hann duglegur á næturlífinu þegar hann var ungur og heitur leikari. Í dag hefur hann þó sagt skilið við áfengi og hefur ekki drukkið í átta ár.
Aðspurður hvort drykkjan hafi verið orðin vandamál svarar hann:
„Hún var orðin vandamál fyrir aðra í kringum mig. Ég sinnti ekki fjölskyldunni eins og ég hefði viljað. Þetta er samt ekkert mál, ég man ekki einu sinni eftir því hvernig það var að drekka, það er orðið svo langt síðan. Ég bara hætti, fór ekki í meðferð. Þetta er gott eins og það er.“
Baltasar biðst undan því að ræða mikið um einkalíf hjónanna. Hann viðurkennir þó, aðspurður, að heimshornaflakk hans sé álag á hjónabandið. „Það fylgja þessu eðlilega ýmis vandamál. Blessaður, þetta er svona hjá öllum. Þetta hafa íslenskir sjómenn lifað við alla tíð. Það er alveg ljóst að svona líf er álag en við erum búin að vera gift í fjórtán ár og það er ekkert annað í spilunum en að halda áfram að vera gift,“ segir Baltasar brosmildur.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna