ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Afþakkaði gylliboð: Vildi ekki bera brjóstin átján ára

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:15 › 12. mars 2010
Kristrún Ösp vill frekar verða glamúrfyrirsætan en fegurðardrottning. Útilokar ekki nektarmyndatökur í framtíðinni.

Kristrún Ösp vill frekar verða glamúrfyrirsætan en fegurðardrottning. Útilokar ekki nektarmyndatökur í framtíðinni. Mynd: Þórhallur, Pedrómyndir

„Þeir vildu að ég myndi segja frá mjög persónulegum hlutum sem mér fannst ekki við hæfi. Mér hefur líka verið boðið að vera Page 3 stelpan hjá The Sun sem ég afþakkaði líka því mér fannst ég ekki tilbúin. Þá hefði ég þurft að vera ber að ofan og í það var ég ekki tilbúin 18 ára,“ segir Kristrún Ösp Barkardóttir í viðtali við helgarblað DV.

Kristrún hefur verið mikið milli tannanna á fólki hér á landi vegna sambands hennar við knattspyrnuhetjuna Dwight Yorke sem hún kynntist þegar hún var au pair á Englandi. Nú hefur hún kynnst hinu ljúfa lífi og viðurkennir að það sé erfitt að koma heim í hversdagsleikann á Íslandi. Hún upplýsir í viðtalinu að Yorke sé afbrýðissama týpan.

Í fyrra tók Kristrún tók þátt í Ungfrú Norðurland og hafnaði í fimmta sæti. Hún afþakkaði keppnisrétt í Ungfrú Ísland og ákvað að slík keppni væri ekki fyrir hana.

„Ég hefði viljað ná lengra en þar sem það tókst ekki ákvað ég að láta gott heita. Ég hef setið mikið fyrir fáklædd og það fór kannski fyrir brjóstið á einhverjum og útskýrir ef til vill útkomuna. Kannski þótti ég ekki góð fyrirmynd. Ég hef líka meiri áhuga á að verða glamúrfyrirsæta,“ segir hún en bætir við að hún eigi engar sérstakar fyrirmyndir í bransanum.

„Ætli Ásdís Rán sé ekki sú eina hér á landi sem hefur náð langt. Hún er dugleg að koma sér áfram og mér finnst hún mjög flott. Öfund og baktal fylgir þessum bransa en slæm umföllun er betri en engin,“ segir Kristrún sem voru boðnar háar fjárhæðir fyrir að opna sig um samband þeirra Yorke af slúðurblaðinu News of the World.

„Þeir vildu að ég myndi segja frá mjög persónulegum hlutum sem mér fannst ekki við hæfi. Mér hefur líka verið boðið að vera Page 3 stelpan hjá The Sun sem ég afþakkaði líka því mér fannst ég ekki tilbúin. Þá hefði ég þurft að vera ber að ofan og í það var ég ekki tilbúin 18 ára. Sem betur fer. Í dag gæti ég vel hugsað mér þetta enda eru miklir peningar í þessum bransa og t.d. Jordan byrjaði sinn feril þarna,“ segir hún og bætir við að Yorke sé ekki á móti því að hún gerist glamúrmódel. „Eini gallinn við Yorke er hvað hann er afbrýðisamur og það getur farið í taugarnar á mér en hann setur sig ekki á móti því að ég sitji fyrir. Ég vil bara vinna að mínum ferli á mínum hraða og gera hlutina rétt en ekki heimskulega.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.