Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði hendur í hári ökumanns seint í gærkvöldi sem virti ekki merki lögreglunnar um að stöðva. Svo fór að maðurinn missti stjórn á ökutæki sínu þegar hann ók á töluverðum hraða niður Lyngháls og endaði á bílastæðinu við Lögregluskólann.
Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vaknaði grunur hjá lögreglu um að ökumaðurinn væri án ökuréttinda. Sá grunur reyndist á rökum reistur en þegar lögregla gaf manninum merki um að stöðva jók hann hraðann.
Þegar maðurinn var kominn niður Lynghálsinn voru í raun tveir góðir kostir í stöðunni og einn slæmur. Þeir góðu voru að beygja annað hvort til hægri eða vinstri en sá slæmi að halda áfram yfir grasblett og enda ökuferðina á bílastæði Lögregluskóla ríkisins. Svo fór að maðurinn ók beint áfram og yfir kant. Endaði bifreiðin á bílastæðinu fyrir neðan stórskemmd.
Maðurinn, sem er á sjötugsaldri, reyndi því næst að flýja undan lögreglu á hlaupum en lögregluþjónar sem veittu honum eftirför voru fljótir að hlaupa hann uppi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna