Gabriele Amorth, særingarstjóri Vatíkansins, segir að ekki leiki vafi á því að djöfullinn hafi haldið innreið sína í hin helgustu vé þar sem hann hefur sig mikið í frammi. Hann segir að páfinn, Benedikt sextándi, viti af þessu og hann hafi mikla trú á særingarmönnum Vatíkansins.
Amorth, sem er 85 ára, gaf nýlega út æviminningar sínar en hann hefur verið særingarstjóri Vatíkansins síðastliðin 25 ár. Hann segir að djöfladýrkun biskupa og trúleysi kardinála gera það að verkum að djöfullinn hafi náð fótfestu í Vatíkaninu.
Amorth segist hafa framkvæmt yfir 70 þúsund særingar ferli sínum og að myndin The Exorcist frá árinu 1973 sýni það á raunsæjan hátt þegar djöfullinn nær tökum á mannfólki. Þá sagðist Amorth í viðtali árið 2006 vita til þess að Adolf Hitler og Joseph Stalin hafi verið andsetnir þegar þeir frömdu voðaverk sín á tuttugustu öldinni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu