ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Pyntuðu sextán ára dreng og kröfðust lausnargjalds

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:30 › 11. mars 2010
Shaheed Rahman (til vinstri) og Syed Ahmed (til hægri) fengu þyngstu dómana.

Shaheed Rahman (til vinstri) og Syed Ahmed (til hægri) fengu þyngstu dómana.

Dómstóll í Bretlandi hefur dæmt fimm karlmenn í samtals 40 ára fangelsi fyrir að ræna og pynta sextán ára gamlan dreng. Mennirnir héldu drengnum í fimm klukkustundir og kröfðust fjögurra milljóna króna lausnargjalds frá foreldrum hans.

Mennirnir sögðu fyrir dómi að þeir hefðu rænt honum vegna fíkniefnaskuldar fjölskyldu hans. Á meðan mennirnir héldu honum helltu þeir meðal annars sjóðandi heitu vatni yfir fótleggi hans, brenndu hann með straujárni. Þá hótuðu þeir að skera af honum fingurna ef skuldin yrði ekki greidd á tilskyldum tíma.

Atvikið átti sér stað þann 30. apríl á síðasta ári þegar pilturinn var á leið heim úr skóla. Var hann neyddur til að hringja í foreldra sína og segja þeim að honum hafi verið rænt.

Lögreglan réðist til inngöngu í húsið síðar um kvöldið eftir að nágrannar heyrðu hróp og köll úr húsinu. Var hann með slæm brunasár á fótleggjum. Þá hefur hann þjáðst af svefnleysi eftir atvikið og ekki þorað að fara í skólann, að því er fram kemur í frétt Daily Mail.

Tveir mannanna, Saheed Rahman og Syed Ahmed höfðu sig mest í frammi. Voru þeir dæmdir í annarsvegar tólf ára og níu mánaða fangelsi og hinsvegar í tólf ára fangelsi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.