Oddur segir að þótt krabbamein í blöðruhálskirtli geti verið feimnismál sé afar mikilvægt að láta fjölskyldumeðlimi vita því krabbinn geti legið í ættum. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir
Oddur Benediktsson er með ólæknandi krabbamein. Oddur, sem er er 72 ára, er sáttur og segir að öll verðum við einhvern veginn að yfirgefa þennan heim. Krabbamein í karlmönnum hefur lengi verið feimnismál en með átakinu Karlmenn og krabbamein hefur umræðan verið opnuð. Oddur bendir á að það sé alveg jafn mikilvægt fyrir karlmenn að þukla sín kynfæri líkt og konur þukla sín brjóst.
„Eiginkonunni fannst ég þurfa grunsamlega oft á klósettið á næturnar og bað mig að láta athuga málið,“ segir Oddur Benediktsson sem greindur var með ólæknanlegt krabbamein í blöðruhálskirtli í desember 2005, þá 68 ára.
„Mér fannst erfitt að fá þessa greiningu og fékk enga áfallahjálp né félagslega aðstoð og þar sem ég greinist fyrir jólin var ekkert gert í mínum málum fyrr en eftir jólafrí,“ segir hann en bætir við að sjálfur hafi hann hellt sér út í upplýsingasöfnun á öllu sem viðkom krabbameininu.
„Ég vildi taka mína ábyrgð og leið betur ef mér fannst ég berjast við sjúkdóminn en ekki bara vera viljalaust verkfæri. Fyrir vikið fór ég að færa mig yfir á kínverskt matarræði og taka út kjöt og mjólk því hormón í þeim matvörum ertir upp þetta krabbamein og það sama á við brjóstakrabbamein.“
Oddur segir að það hafi verið mjög erfitt að færa börnunum og eiginkonunni fréttirnar enda hafi hann ekki vitað hvernig best væri að standa að slílku. Í dag hafi Krabbameinsfélagið Framför gefið öllum almennum bókasöfnum bókina Bragð í baráttunni ásamt DVD disk um krabbamein í blöðruhálskirtli þar sem m.a. sé farið í greiningu og félagsleg áhrif krabbans.
„Auðvitað ætti slíkt að vera hlutverk heilbrigðisstéttarinnar en þessi diskur útskýrir málin vel og flestum líður betur ef þeir hafa góðar upplýsingar. Heilbrigðiskerfið er frábært út af fyrir sig en það þarf að huga betur að atburðarásinni við greiningum og ákvarðanatekt um meðferð.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ