„Það er ekki erfitt að reikna úr fjármagnskostnaðinn, en þeir voru með miklu lægri tölu en við. Ég held að okkar fólk viti miklu meira um það en nokkrir amerískir bankamenn sem Íslendingar hafa ráðið til sín,“ segir Jan Kees De Jager, fjármálaráðherra í bráðabirgðastjórn Hollands.
Þessi orð lét De Jager falla í gær þegar fjármálanefnd hollenska þingsins yfirheyrði hann um málið í gær og Fréttablaðið greinir frá í dag. Vísar hann þar til Lee Bucheit, formanns íslensku samninganefndarinnar og Don Johnson sem hefur verið nefndinni til ráðgjafar.
Að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag sagðist De Jager hafa rætt málið við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra í vikunni. „Enginn er að hnykla vöðvana eða sýna hörku. Við skiljum afstöðu hvors annars. Þeir viðurkenna að peningana þurfi að endurgreiða,“ er haft eftir honum.
Þá kom fram í yfirheyrslunni, sem stóð í tvo og hálfan tíma, að ágreiningur er meðal hollenskra stjórnmálaflokka um það hvort beita eigi Íslendinga þrýstingi á vettvangi Evrópusambandsins eða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hefur Geert Wilder, þingmaður Frelsisflokksins, lagt slíkan þrýsting til en sjálfur segir De Jager að það sé ekki vænlegt til árangurs. Íslendingar þurfi nú að koma aftur með tillögu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun