ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Fangi kærir fangelsismálastjóra

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:30 › 11. mars 2010

Þór Óliver Gunnlaugsson, refsifangi á Kvíabryggju, hefur formlega kært Pál Winkel fangelsismálastjóra til dómsmálaráðuneytisins. Ástæðan er sú að fanginn telur á sér brotið fyrir að fá ekki að fara í svokallaða vinnuaðlögun.

Hann lýkur afplánun sinni á haustmánuðum 2011 og telur sig eiga þann rétt, að uppfylltum þeim skilyrðum að hafa verið agabrotalaus síðsta hálfa árið, að fá að tækifæri til að vinna með afplánun. Því hefur fangelsismálastjóri hafnað og ráðuneytið þarf nú að taka afstöðu til þeirrar höfnunar. Verði hún staðfest ætlar Þór Óliver að leita til umboðsmanns Alþingis.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.