ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

60 ára ráðgáta um skyndilega geðveiki þorpsbúa leyst

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:31 › 11. mars 2010
Tilraunirnar enduðu með skelfilegum afleiðingum fyrir fjölmarga þorpsbúa.

Tilraunirnar enduðu með skelfilegum afleiðingum fyrir fjölmarga þorpsbúa.

Árið 1951 fóru fjölmargir íbúar þorpsins Pont-Saint-Esprit í suðausturhluta Frakklands að sjá einkennilegar ofsjónir. Fjölmargir urðu geðveikir og eyddu því sem eftir var á geðsjúkrahúsi í nágrenni við bæinn. Hingað til hafa aðeins getgátur verið uppi um hvers vegna svo margir sáu ofsjónir og urðu hreinlega geðveikir.

Bandaríski rannsóknarblaðamaðurinn H P Alberelli hefur lengi rannsakað málið og telur hann sig vera búinn að komast að hinu sanna í málinu. Fullyrðir hann að bandaríska leyniþjónustan, CIA, hafi komið fyrir ofskynjunarlyfinu LSD í matvælum sem seld voru í þorpinu.

Árið 1951 stóð Kalda stríðið sem hæst og voru tilraunir á ofskynjunarlyfinu tiltölulega skammt á veg komnar. Segist Alberelli hafa komist að því að bandaríska leyniþjónustan hafi verið að gera rannsóknir á virkni efnisins.

Fjölmargar sögur eru til af örlögum þorpsbúa sem neyttu efnisins. Þannig reyndi einn þorpsbúinn að drekkja sér eftir að hafa hrópað að snákar væru að éta hann innan frá. Ellefu ára piltur reyndi að kyrkja ömmu sína, annar þorpsbúi hrópaði að hann væri flugvél áður en hann stökk út um glugga með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði.

Þá sagðist annar maður hafa séð hjartað í sér stökkva út um brjóstkassann. Leitaði hann til læknis og grátbað hann um að koma því aftur fyrir á réttum stað. Þetta varð til þess að fjölmörgum bæjarbúum var komið fyrir á geðsjúkrahúsi í spennutreyjum.

Albarelli komst yfir gögnin þegar hann var að rannsaka sjálfsvíg lífefnafræðingsins Frank Olson sem starfaði fyrir sérstaka deild innan bandaríska hersins sem sá meðal annars um rannsóknir á lyfjum á tímum Kalda stríðsins. Hann stökk út um glugga af þrettándu hæð árið 1953 með þeim afleiðingum að hann lést.

Í rannsókn sinni komst hann yfir gögn sem voru í eigu Olson sem renndu stoðum undir það að bandaríska leyniþjónustan hafi verið að verki í franska þorpinu. Í viðtölum við tvo fyrrum samstarfsfélaga Olsons hafi einnig komið í ljós að leyniþjónustan hafi sprautað LSD yfir þorpið úr lofti auk þess að úða því yfir matvæli.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.