Halldór Baldursson hefur ákveðið að hætta störfum fyrir Morgunblaðið og hefur ráðið sig til Fréttablaðsins.
„Ég hef ekki átt neitt sökótt við Morgunblaðið þannig að ég skil sáttur við þá,“ segir Halldór Baldursson einn besti skopmyndateiknari landsins. Halldór hefur ákveðið að hætta störfum fyrir Morgunblaðið og mun á næstunni hefja störf á Fréttablaðinu undir stjórn Ólafs Stephensen.
Það var Kaffistofa Pressunnar sem greindi frá þessu í gærkvöldi en í samtali við DV.is segir Halldór að hann muni halda áfram að teikna fyrir Morgunblaðið út mánuðinn. Um mánaðamótin mun hann svo hefja störf fyrir Fréttablaðið.
Halldór var ráðinn á Morgunblaðið þegar Ólafur Stephensen tók við ritstjórn blaðsins á vormánuðum 2008. Þar áður hafði Halldór starfað á Blaðinu og á 24 stundum þar sem Ólafur var áður ritstjóri.
Aðspurður segir Halldór að ráðning Ólafs á Fréttablaðið hafi ráðið miklu um þá ákvörðun sína að flytja sig um set. „Maður gengur ekkert inn á Fréttablaðið og ákveður að fara að vinna þar,“ segir Halldór í léttum tón en bætir við að ákvörðun hans um að skipta um vettvang hafi ekkert með ritstjóra Morgunblaðsins að gera.
„Þetta snýst ekki um það að ritstjórarnir séu að reyna að stjórna því hvað ég teikna. Þetta er frekar spurning um hvar manni finnst maður passa betur inn.“







Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“