ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Popp-Emo-Punk-kvöld á Sódómu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:08 › 10. mars 2010
  • Innlifun. Hljómsveitin Endless Dark er á meðal þeirra sem troða upp annað kvöld.

    Innlifun. Hljómsveitin Endless Dark er á meðal þeirra sem troða upp annað kvöld.MYND Eggert Jóhannesson

Svokallað Popp-Emo-Punk-kvöld fer fram á skemmtistaðnum Sódómu á morgun, fimmtudag. Fram koma hljómsvetirnar Endless Dark, Nögl og Reason To Believe. Húsið opnar klukkan 21 og kostar 500 krónur inn. 18 ára aldurstakmark.

Hljómsveitin Endless Dark frá Ólafsvík og Grundarfirð hefur heldur betur vakið athygli eftir að hafa sigrað íslensku undankeppni Global Battle of the Bands og mun hún fara til Bretlands og keppa fyrir Íslands hönd í næsta mánuði.

Hljómsvetin Nögl frá Grundarfirði gaf út sinn fyrst disk, I Proudly Present, í fyrra og hefur síðan þá verið ötul við að kynna hana. Meðal annars má nefna túr um Flórída í fyrra, en einnig vakti hljómsveitin athygli yfir jólin fyrir ábreiðu sína af Snjókorn falla.

Reason to Believe er hljómsveit sem kemur frá Keflavík og náði nýlega þeim skemmtilega árangri að vera valin hljómsveit fólksins á hljómsveitakeppninni Rokkstokk.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.