Fyrrum landsliðsmaðurinn í handbolta, Markús Máni Michaelson Maute, nýtur lífsins þessa dagana á Gili-eyjunum í Indonesíu á sama tíma og hann liggur undir grun um stórfellt gjaldeyrisbrask. Markús er einn fjögurra sem voru handteknir og yfirheyrðir vegna gruns um að hafa braskað með allt að þrettán milljarða króna í gegnum félagið Aserta AB í Svíþjóð. Gjaldeyrisbraskið gæti hafa skilað þeim fjórmenningum milljarði króna í gróða.
Gili-eyjurnar eru þrjár litlar eyjur sem liggja rétt við hvor aðra norðvestur af Lombok í Indónesíu. Er staðurinn oft kallaður paradís vegna þess hversu óspjallaður hann er. Hann býður upp á mikið fyrir ferðamenn og hefur Markús Máni verið að nýta sér það. Hann tók um daginn köfunarpróf og skoraði 98 prósent á bóklega hlutanum enda góður með tölur.
Markús var nýkominn úr rándýrri skíðaferð áður en hann ákvað að það frí væri ekki nóg. Stökk hann því í annað fimm vikna frí um Austurlönd á meðan málefni hans eru rannsökuð af Efnahagsbrotadeild Lögreglunnar. Hann verður í það minnsta ekki handtekinn ef marka má orð hans á Facebook-síðu sinni: „Erum á Gili-Islands. Hér á eyjunni eru engin vélknúin farartæki og engin lögga. Bara sólskin og reggie,“ skrifar Markús Máni frá paradís.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar