Einn litháísku sakborninganna í mansalsmálinu, Gediminas Lisauskas, brosti er hann var leiddur út úr réttarsal á mánudag. Var þá nýbúið að kveða upp yfir honum fimm ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir aðild að mansalsmálinu.
Maðurinn hefur áður verið myndaður með bros á vör á leið í eða úr réttarsal. Lögmenn sakborninganna vildu ekki tjá sig um það af hverju Gediminas var brosandi en eftir því sem DV kemst næst hefur fjölmiðlaathyglin sem málið hefur fengið komið sakborningunum fimm fremur spánskt fyrir sjónir.
Dómurinn er sögulegur því aldrei áður hefur verið dæmt í mansalsmáli hér á landi. Sakborningarnir munu þó ekki hafa verið jafnbrosmildir í réttarsal því samkvæmt heimildum DV sást glitta í tár hjá þeim þegar dómurinn hafði verið kveðinn upp.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir