Magnús Bjarnason, til vinstri, var ráðinn framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar á mánudaginn.
Magnús Bjarnason var ráðinn framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar á mánudaginn. Fram að þeim tíma starfaði hann sem framkvæmdastjóri Capacent Glacier. Félagið IDA ehf. sem er í eigu Magnúsar skuldaði skilanefnd Glitnis 640 milljónir króna í lok árs 2008 samkvæmt ársreikningi félagsins.
Eigið fé félagsins er hins vegar neikvætt um 395 milljónir króna. Skuldin er til komin vegna kúluláns sem Magnús fékk til hlutabréfakaupa meðan hann starfaði sem framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Glitnis. Hann fékk kúlulánið í mars 2007, sama dag og Birna Einarsdóttir, en líkt og frægt er orðið urðu „tæknileg mistök“ til þess að kúlulánakaup Birnu gengu ekki eftir.
„Það er mikill styrkur fyrir Landsvirkjun að fá Magnús Bjarnason til að leiða markaðs- og viðskiptaþróun fyrirtækisins,“ sagði Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, í tilkynningu.
Það vekur nokkra athygli að framkvæmdastjóri hjá Capacent skuli sækja um starf sem sama fyrirtæki sér um ráðningu í. Starfið var auglýst hjá Capacent fyrir um mánuði. „Það er ekkert óeðlilegt að starfsfólk Capacent sæki um störf sem fyrirtækið auglýsir og fái þau,“ segir Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri ráðninga hjá Capacent.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna