ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Hvað tekur við hjá verðlaunahöfum Óskarsins?

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:31 › 10. mars 2010
  • Bigelow og Boal. Vinna aftur saman að Triple Frontier.

    Bigelow og Boal. Vinna aftur saman að Triple Frontier.

  • Christoph Waltz leikur aftur vonda kallinn.

    Christoph Waltz leikur aftur vonda kallinn.

  • Bridges kann að velja sér hlutverk. Aftur til liðs við Coen-bræður.

    Bridges kann að velja sér hlutverk. Aftur til liðs við Coen-bræður.

Eftir að hafa verið sæmd stærstu viðurkenningu kvikmyndageirans á sunnudaginn þá velta kannski einhverjir fyrir sér hvað tekur við hjá verðlaunahöfunum. Los Angeles Times rýndi í framtíð Óskarsfólksins og hvað sé næst á dagskrá hjá þeim.

Kathryn Bigelow og Mark Boal, leikstjóri og handritshöfundur The Hurt Locker, mun aftur leiða saman hesta sína við myndina Triple Frontier sem er hasarmydn sem gerist í Suður-Ameríku. Bigelow mun einnig leikstýra prufuþættinum að The Miraculous Year sem HBO-sjónvarpsstöðin er að spá í að framleiða.

Jeff Bridges vann loksins Óskar eftir fjölda tilnefndinga í gegnum árin. Hann mun aftur vinna með Coen-bræðrum á næstunni í endurgerð af myndinni True Grit. Um er að ræða vestra sem upphaflega skartaði sjálfum John Wayne og tryggði honum Óskarsverðlaun á sínum tíma. Bridges mun einnig leika í framhaldi Tron, Tron Legacy.

Sandra Bullock þótti vel að Óskarnum komin þegar hún vann fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki. Ekkert er á dagskrá Söndru á næstunni þó hún muni vera að velta fyrir sér að leika í lögfræðigrínmynhdinni Bobbi Sue.

Mo'Nique var frábær í Precious og þótti besta leikkonan í aukahlutverki. Ekkert er heldur á dagskránni hjá henni enn sem komið er annað en að halda áfram með spjallþátt sinn á BET-sjónvarpsstöðinni.

Christoph Waltz var skuggalega góður í Inglorious Basterds enda fékk hann Óskarinn fyrir besta leik í aukahlutverki karla. Hinn viðkunnalegi Waltz mun leika vonda kallinn í Green Hornet sem kemur út næsta vetur og skartar meðal annars Seth Rogen í aðahlutverki.

Geoffrey Fletcher handritsthöfundur Precious er að skrifa fangelsisdramað Attica auk þess að vinna að nýju verkefni sem hann hefur hug á að leikstýra.

Pete Doctor leikstjóri Up, sem vann fyrir bestu teiknimyndina, er að vinna að nýrri Pixar-mynd. Framhaldsmynd af hinni vinsælu teiknimynd Monsters Inc. sem hann einnig gerði á sínum tíma.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.