ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Guðsmenn borga Gylfa út

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:47 › 10. mars 2010
Gylfi Ægisson. Lag hans var spilað í belg og biðu þar til einhver borgaði fyrir að taka það úr spilun.

Gylfi Ægisson. Lag hans var spilað í belg og biðu þar til einhver borgaði fyrir að taka það úr spilun. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Einu sinni á ári er afmælisvika hér á Lindinni. Í þessari viku erum við með fjáröflun. Þetta var mín uppástunga, ég gaf sjálf 10 þúsund krónur fyrir að fá lagið í spilun, ef einhver hefði viljað fá það úr spilun gat hann borgað 10 þúsund krónur,“ segir Svanhildur Hákonardóttir, sjálfboðaliði á Kristilegu útvarpsstöðinni Lindinni.

Í vikunni tók útvarpsstöðin upp á því í fjáröflunarskyni að spila í belg og biðu hinn gamla slagara Gústi Guðsmaður eftir Gylfa Ægisson. Tilgangurinn var að spila lagið aftur og aftur þar til einhver hlustandi reiddi fram 10 þúsund krónur til þess að taka lagið úr spilun.

Fjáröflunin gekk vel, því Gústi Guðsmaður fékk að hljóma aðeins þrisvar sinnum áður en ónefndur hlustandi reiddi fram 10 þúsund krónur fyrir að taka lagið úr spilun. Aðspurð hvort um örþrifaráð hjá hlustandanum hafi verið að ræða, segir hún: „Nei, þetta er allt í góðu gamni gert hjá okkur. Það gefa allir með gleði í hjarta því þessi stöð gefur okkur kristnu fólki svo mikið,“ segir hún.

Svanhildur segist hafa fengið þessa óvenjulegu fjáröflunarhugmynd hjá Bylgjunni, sem tók upp á því í fjáröflun fyrir góðgerðarmál að spila eitthvað lag í sífellu, þar til hlustendur greiddu fyrir að taka lagið úr spilun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.