Þó að Sævar viðurkenni að breytingin sé gerð til að missa ekki fleira í hendur bankanna segir hann engar skuldir skildar eftir í gamla félaginu.
Nóvembermánuður síðastliðinn var viðburðaríkur hjá Sævari Jónssyni, eiganda Leonards og fyrrverandi knattspyrnuhetju, en þá færði hann rekstur skartgripa- og úraverslunar sinnar yfir á nýja kennitölu og gerði kaupmála við eiginkonu sína þannig að verslunin fluttist yfir á hana í hinu nýja fyrirtæki. Í síðustu viku var hann sjálfur úrskurðaður gjaldþrota.
Fram í nóvember 2009 var rekstur Leonards undir félagi sem hét Leonard ehf. þar sem Sævar var skráður í stjórn, sem framkvæmdastjóri og með prókúruumboð fyrirtækisins. Þá var skyndilega gerð nafnabreyting á fyrirtækinu og því breytt í Ince ehf. en samkvæmt ársreikningi 2008 hvíldu þar talsverðar skuldir.
Í þessum sama mánuði, nóvember 2009, var síðan stofnað nýtt fyrirtæki, Leonard ehf., sem heldur utan um rekstur búðanna en sú breyting er á nýja fyrirtækinu að þar er eiginkona Sævars, Helga Daníelsdóttir, komin með öll völd, bæði í stjórn og með prókúruumboð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun