Lögreglan í Wichita í Bandaríkjunum hafði í síðustu viku afskipti af ökumanni bifreiðar sem reyndist alblóðugur þegar hann hafði verið stöðvaður af lögreglu. Maðurinn gaf þær skýringar á útganginum á sér að hann hefði verið barinn til óbóta fyrir að reyna að greiða fyrir fíkniefni með spilapeningum úr Monopoly.
Það blæddi úr höfði og andliti hins 33 ára manns sem kvaðst hafa reynt að kaupa krakk að verðmæti mörg hundruð dollara fyrir spilapeningana.
Svo virðist sem dópsalanum hafi ekki verið skemmt því hann bauð manninum með sér heim þar sem hann tók sig til við að berja hann til óbóta með skafti skammbyssu sinnar. Fleiri hafi síðan tekið þátt í barsmíðunum.
Lögreglan í Wichita segir að maðurinn sé ekki lífshættulega slasaður en hann hafi þó ekki viljað gefa upp nafn dópsalans. Lögreglan vill hafa hendur í hári hans.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung