ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Vísað úr landi vegna tengsla MC Iceland við Hells Angels

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:39 › 9. febrúar 2010
Leif Ivar fór af landi brott í morgun.

Leif Ivar fór af landi brott í morgun.

Útlendingastofnun ákvað í gærkvöldi að synja norska Hells Angels-leiðtoganum Leif Ivar Kristiansen um leyfi til landgöngu á Íslandi en hann hafði komið til Íslands frá Osló fyrr um daginn. Ákvörðunin var tekin á grundvelli mats lögreglu.

Að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu var það metið svo að koma hans til Íslands tengdist án vafa fyrirhugaðri inngöngu íslenska vélhjólaklúbbsins MC Iceland í Hells Angels-glæpasamtökin. Við þá inngöngu mun íslenski hópurinn fá stöðu fullgildrar deildar innan Hells Angels.

Telur lögregla að samstarf MC Iceland og erlendra deilda Hells Angels sem og fyrirhuguð innganga íslenska hópsins í samtökin skapi hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi og feli því í sér ógn við samfélagið.

Í tilkynningunni kemur fram að alls staðar þar sem Hells Angels hafa náð að skjóta rótum hefur aukin skipulögð glæpastarfsemi fylgt í kjölfarið. Skipulögð glæpastarfsemi beinist gegn almannahagsmunum enda hafa afbrot sem henni fylgja áhrif á samfélagið og öryggi almennings.

Fram hefur komið í DV að MC Iceland (áður Fáfnir) hafi hlotið viðurkenningu sem stuðningsdeild Hells Angels á Íslandi. Liggur fyrir að stefnt sé að því að vélhjólaklúbburinn MC Iceland fái fulla aðild að Hells Angels-samtökunum árið 2010. Nú þegar hafa orðið þáttaskil í starfsemi klúbbsins. Hann hefur náð lokastigi þess að verða fullgild og sjálfstæð deild í alþjóðasamtökum Hells Angels. Það þýðir að staða klúbbsins hefur gjörbreyst og opnað fyrir frekari hættu á sviði skipulagðrar brotastarfsemi, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Þessu inngönguferli MC Iceland hefur verið stýrt frá Hells Angels-samtökunum í Noregi og hefur uppbygging hinnar íslensku deildar Hells Angels um flest verið í samræmi við forskriftir Hells Angels. Hafa félagar í MC Iceland gengist undir skilmála Hells Angels.

Til þess að hljóta fulla aðild mun íslenski hópurinn þurfa að geta sýnt fram á að starfsemi og skipulag sé í samræmi við kröfur Hells Angels. Þetta eykur hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi af hálfu íslensku félaganna.

„Minnt er á að mjög algengt er að félagar í Hells Angels hafi hlotið refsidóma fyrir alvarleg afbrot og ljóst er að í röðum þeirra er að finna marga ofbeldismenn. Þetta á við um nokkra félaga í MC Iceland, Íslandsdeild samtakanna.  Með samstarfi við erlendar deildir Hells Angels hefur hópur manna hér á landi efnt til formlegrar samvinnu við aðila sem í mörgum tilfellum eru harðsvíraðir, þaulskipulagðir og hættulegir glæpamenn. Þau kynni og þau tengsl auka því hættu á að íslensku félagarnir taki upp aðferðir og starfshætti erlendra vítisengla. Raunar kann slík krafa að koma fram af hálfu erlendu félaganna,“ segir ennfremur í tilkynningu lögreglu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.