ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Veitingamaður dæmdur til að greiða 35 milljónir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:12 › 9. febrúar 2010
Vestmannaeyjar. Maðurinn var dæmdur til að greiða 35 milljónir króna.

Vestmannaeyjar. Maðurinn var dæmdur til að greiða 35 milljónir króna. Mynd DV

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt veitingamann í Vestmannaeyjum í átta mánaða fangelsi og til að greiða 35 milljónir í sekt vegna skattalagabrots. Maðurinn var framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi Lundans-veitingahúss í Vestmannaeyjum þegar brotin voru framin.

Manninum var gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum vegna uppgjörstímabilanna frá janúar 2003 og fram á seinni hluta árs 2005. Þá var honum gefið að sök að hafa ekki staðið skil á skattframtölum gjaldárin 2004 til 2005 vegna tekna rekstrarárin 2003 og 2004, og þannig ekki talið fram til skatts fjármuni sem skattskyldir eru lögum um tekjuskatt.

Maðurinn neitaði sök fyrir dómi en dómari í málinu taldi óumdeilt að maðurinn hafi ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum á lögmæltum tíma. Fangelsisdómurinn yfir manninum er skilorðsbundinn til tveggja ára. Greiði hann ekki sektina innan fjögurra vikna kemur til sex mánaða fangelsi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.