ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Útdauður ættbálkur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:30 › 9. febrúar 2010
Fráfall Boa markar endalok Bo-ættbálksins.

Fráfall Boa markar endalok Bo-ættbálksins. Mynd AFP

Síðasti meðlimur forns ættbálks sem búið hefur á Andaman-eyjum í um 65.000 ár er látinn, að sögn samtaka sem barist hafa fyrir vernd frumbyggja eyjanna.

Í tilkynningu frá samtökunum Survival International lést Boa, sem var hálfníræð, í síðustu viku á Andaman-eyjum en hún var síðasti eftirlifandi Bo-ættbálksins, eins af tíu aðskildum ættbálkum sem byggt hafa eyjarnar.

„Talið er að Bo-ættbálkurinn hafi lifað á Andaman-eyjum í allt að 65.000 ár sem gerir hann að afkomendum eins elsta menningarsamfélags jarðar,“ sagði í tilkynningunni frá Survival International.

Endalok fornrar tungu
Tungumálasérfræðingar segja að með fráfalli Boa hafi Indland aukinheldur glatað því tungumáli sem var í mestri hættu. Tungumálið heitir Bo og Boa var sú síðasta sem tjáði sig á því, en undir það síðasta hafði hún engan til að tala við á því tungumáli þar sem eiginmaður hennar og börn voru þegar látin.

Anvita Abbi, prófessor og verkefnastjóri við Jawaharlal Nehru-háskólann í Nýju Delí, hitti Boa á síðasta ári og sagði að hún hefði verið eina manneskjan sem mundi gömlu söngva ættbálksins. Abbi sagði einnig að Boa hafi auk Bo-tungumálsins kunnað aðrar Andaman-mállýskur.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.