ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Reyna að bjarga Hollywood-skiltinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:47 › 9. febrúar 2010

Umhverfisverndarsinnar í Hollywood í Bandaríkjunum reyna nú allt hvað þeir geta til að bjarga jörðinni sem hýsir hið goðsagnakennda Hollywood-skilti. Er áformað að byggja fjögur lúxus-heimili á hlíðinni við skiltið sem yrði til þess að skiltið hverfur á bakvið þau.

Árið 2002 þegar sprenging varð á faseignamarkaðinum í Bandaríkjunum keypti þarlendur verktaki 138 akra af landi í kringum landeign athafnamannsins Howard Hughes í Hollywood-hlíðunum. Hann áætlaði að byggja fjögur setur á landeigninni en fyrir tveimur árum fór landeignin aftur á sölu og er metin á um 22 milljónir Bandaríkjadala.

Umhverfisverndarsinnar náðu samkomulagi um að borga tólf milljónir dala fyrir landeignina og hafa safnað um helmingi þeirrar upphæðar og hafa frest til miðjan apríl næstkomandi til að koma með restina af fjárhæðinni.

Takist þeim það verða þeir búnir að bjarga Hollywood-skiltinu.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.