Tólf ára gömul stúlka frá Sádi Arabíu ætlar að freista þess að fá skilnað frá eiginmanni sínum sem er heilum 68 árum eldri en hún, eða 80 ára gamall. Fái hún ósk sína uppfyllta gæti málið orðið vatn á myllu þeirra sem vilja banna barnahjónabönd í konungdæminu.
Mannréttindasamtök í Sádi Arabíu hafa ráðið lögmenn handa stúlkunni sem munu reka mál hennar fyrir dómstóli í borginni Buraidah, sem skammt frá höfuðborginni Riyadh. Í Sádi Arabíu er engin lágmarksaldur fyrir stúlkur til að ganga í hjónabönd. Feður ungra stúlkna ráða í raun örlögum þeirra og gefið þær hverjum sem þeir kjósa.
Fyrir liggur frumvarp til laga um að barnahjónabönd verði bönnuð í landinu og vona mannréttindasinnar að mál stúlkunnar muni hjálpa til í þeirri baráttu. Eiginmaður stúlkunnar er frændi hennar og gengu þau í hjónaband á síðasta ári þó móðir hennar hafi verið á móti hjónabandinu.
Búist er við að ákvörðun dómstóls liggi fyrir innan nokkurra daga. Hafa lögmenn stúlkunnar gefið það út að verði skilnaðarbeiðninni hafnað verði þeim úrskurði vera áfrýjað til æðri dómstiga.
Sádi Arabía er aðili að barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þar sem kveðið er á um að einstaklingar undir átján ára aldri séu börn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu