Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í þriggja ára fangelsi fyrir tvær nauðganir og sifjaspell. Var maðurinn meðal annars ákærður fyrir að hafa haft samræði við fimmtán ára gamla stúlku. Notfærði hann sér það að stúlkan gat ekki spornað við samræðinu sökum vímuefnaáhrifa og svefndrunga.
Fyrri nauðgunin átti sér stað fimmtudagskvöldið fimmtudagskvöldið 6. mars eða föstudaginn 7. mars árið 2008, að því er fram kemur í ákæru. Þá var manninum gefið að sök að hafa útvegað stúlkunni LSD að kvöldi fimmtudagsins sjötta mars. Var manninum gert að greiða stúlkunni eina milljón í skaðabætur.
Síðari nauðgunin átti sér stað þann sjötta maí árið 2009. Notfærði hann sér það að stúlkan gat ekki spornað við samræðinu sökum svefndrunga, og með því að hafa, er stúlkan vaknaði og reyndi að sporna gegn samræðinu, með ofbeldi neytt hana til samræðis og munnmaka en hann hélt stúlkunni meðan hann kom fram vilja sínum.
Auk þess var maðurinn ákærður fyrir að hafa margsinnis ekið undir áhrifum fíkniefna og fyrir marga þjófnaði og þjófnaðartilraunir. Var honum gert að sæta fangelsi í þrjú ár og þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun