Styður biskup. Eysteinn sóknarnefndarformaður telur biskup hafa verið mjög liðlegan og hafa sýnt sóknarnefndinni mikinn stuðning í erfiðum málum.
„Frá upphafi hefur biskup reynt að vera mjög liðlegur við okkur út af þessum málum. Hann er að reyna að gera sitt allra besta til að við sóknarbörnin fáum það sem við viljum,“ segir Eysteinn Ó. Jónasson, sóknarnefndarformaður Selfosskirkju, um nýlega beiðni Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, um að sóknarprestur Selfosskirkju afsali sér völdum í kirkjunni.
Aðspurður segist hann þakklátur biskupi fyrir stuðninginn. Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sóknarprestur nýs sameinaðs prestakalls á Selfossi, hefur verið beðinn um að gefa frá sér völdin í Selfosskirkju og halda sig áfram við sveitakirkjurnar þrjár í sókninni. Það var biskupinn sem bað prestinn um það. Sóknarnefnd Selfosskirkju sættir sig ekki við að fá Kristinn sem sóknarprest.
Eysteinn telur að gagnrýni á beiðni biskups sé til þess fallin að klekkja á Karli og reyna að gera hann vanhæfan. Aðspurður segir hann deiluna einfaldlega snúast um að sóknarbörn Selfosskirkju velji sinn eigin sóknarprest.
Eysteinn bendir á að Karl biskup hafi lagt til að sameiningin yrði ekki til afgreiðslu á síðasta kirkjuþingi þannig að söfnuðurinn gæti í rólegheitunum valið sinn sóknarprest. Aðspurður vill hann ekki gefa upp hvaða umsækjandi honum hugnist helst í prestsvalinu sem fram undan er.
„Það er frábært fólk búið að sækja um og það verður erfitt að velja. Biskupinn er að reyna að ná sáttum og með þessari beiðni hans var hann að reyna það. Ég er honum þakklátur fyrir að reyna allt sem hann getur til að ná endanlegri sátt í söfnuðinum þannig að við fáum okkar prest yfir okkar kirkju. Séra Kristinn má alveg messa hér en við viljum einn mann hér til að stýra kirkjunni. Biskup segir að það sé eina leiðin að sóknarprestur og prestur geri með sér samning á þann hátt að presturinn verði með afgerandi stöðu við okkar kirkju. Sóknarpresturinn vill einhvern veginn vera aðallega í Selfosskirkju og okkur þykir það mjög undarlegt,“ segir Eysteinn.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“