ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Stefnir í kalt stríð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:21 › 9. febrúar 2010

Meira en helmingur Kínverja sem þátt tóku í könnun á vegum kínverska ríkisdagblaðsins Global Times eru þeirrar skoðunar að það stefni í kalt stríð á milli Kína og Bandaríkjanna.

Önnur sjálfstæð könnun sem gerð var fyrir breska blaðið Sunday Times leiddi í ljós að embættismenn í sjó- og landher Kína spá því að til hernaðaraðgerða komi, og að stjórnmálaleiðtogar hvetja til þess að Kínverjar selji meira af vopnum til fjandmanna Bandaríkjanna.

Í augum Kínverja er afstaða Bandaríkjamanna og loforð Baracks Obama um aukna hörku í viðskiptasambandi ríkjanna viðbrögð gegn auknu valdi Kína.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.