Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, er einn af þeim þingmönnum sem hagnaðist á sölu stofnfjárbréfa í SPRON. Árni sagði í samtali við DV.is að hann hafi átt stofnfjárbréf í SPRON upp á þrjár milljónir króna. Er hann seldi þau var nafnvirðið á þeim um fimm og hann hafi fengið um fimmtán milljónir króna en haldið eftir um ellefu milljónum króna eftir skatta.
Árni sat í sex ár í stjórn SPRON, frá 1998 til 2004. Árni seldi stofnfjárbréfin seinni hluta ársins 2007 skömmu áður en SPRON fór á markað. Árni sagðist í samtali við Kastljósið í gær hafa verið mótfallinn því að breyta sparisjóðnum í hlutafélag. Er ákvörðunin um að SPRON yrði hlutafélag ákvað Árni að selja stofnfjárbréfin að því er fram kom í Kastljósinu í gær.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna