Borgarmálafélag F-listans segir ranglega haldið fram á forsíðu Fréttablaðsins að F-listi Frjálslyndra og óháðra hafi fengið tíu prósent af 130 milljón króna framlagi Reykjavíkurborgar ti stjórnmálasamtaka vegna áranna 2007-2010.
Í tilkynningu frá félaginu segir að samkvæmt fréttinni ætti því borgarstjórnarflokkur Frjálslyndra og óháðra að hafa fengið þrettán milljónir króna í styrki frá borginni en svo sé ekki. „ Hið sanna er, að árið 2007 fór allt framlagið til skrifstofu Frjálslynda flokksins og í vasa vina og vandamanna Guðjóns Arnar Kristjánssonar, sem nú hefur gert flokkinn gjaldþrota,“ segir í tilkynningu félagsins.
Ekki ein einasta króna hefur runnið til borgarstjórnar- og sveitastjórnarframboða. „Ólafi F. Magnússyni oddvita F-listans var því ætlað að greiða alla reikninga vegna borgarstjórnarflokksins úr eigin vasa! Það var ekki fyrr en 20. júní árið 2008, sem borgarmálafélag F-lista fékk fyrstu og einu greiðsluna frá borginni kr. 3,4 milljónir inn á reikning sinn,“ segir í tilkynningunni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna