ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Sex milljarðar og Statham

Ásgeir Jónsson asgeir@dv.is
10:21 › 9. febrúar 2010
Sigurjón er nýkominn af Sundance þar sem hann sat í einni af dómnefndunum fimm.

Sigurjón er nýkominn af Sundance þar sem hann sat í einni af dómnefndunum fimm.

„Undirbúningur er hafinn en tökur hefjast um miðjan apríl í Melbourne í Ástralíu,“ segir Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi um spennumyndina The Killer Elite. Myndin skartar hasarmyndahetjunni Jason Statham í aðalhlutverki en hann er þekktur úr myndum á borð við Snatch, Transporter og Crank.

„Myndin mun kosta um það bil 50 milljónir dala í framleiðslu,“ en það eru rúmir sex milljarðar íslenskra króna.

Sigurjón er nýkominn heim af Sundance-kvikmyndahátíðinni þar sem hann átti sæti í einni dómnefndanna. „Ég hef farið reglulega á Sundace-hátíðina í 20 ár og frumsýnt þar sjálfur einar átsa myndir. Það var því gaman og mikill heiður að fá sæti dómnefnd,“ segir Sigurjón sem átti sæti í nefndinni World Dramatic Competition en þar keppa dramamyndir frá öllum heimshornum.

„Við horfum á 16 myndir héðan og þaða úr heiminum og það var mjög fjölbreytt og skemmtielgt. Við sáum myndir frá Grænlandi, Perú, Bólivíu, Nýja Sjálandi, Ástralíu, Suður-Kóreu og Indæandi svo eitthvað sé nefnt,“ en það var ástralska myndin Animal Kingdom sem hlaut aðalverðlaun í flokknum.

Aðspurður hvort mikið af stjörnum hafi verið á hátíðinni segir Sigurjón það minna en oft áður. „Samt voru þarna þekkt nöfn eins og Kevin Costner, Annette Benning, Mark Ruffalo og Bill Gates. Svo var Parker Posey í einni dómnefdanna.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.