ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Ökumaður sjúkrabíls sektaður fyrir að aka gegn rauðu ljósi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:24 › 9. febrúar 2010
Slysið varð þann fjórtánda júlí síðasta sumar.

Slysið varð þann fjórtánda júlí síðasta sumar. Mynd Ingó

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt ökumann sjúkrabíls til að greiða sextíu þúsund krónur í sekt fyrir brot á umferðarlögum og reglum um neyðarakstur. Var ökumaðurinn í neyðarakstri þegar hann ók sjúkrabifreiðinni vestur Hringbrautina gegn rauðu ljósi á gatnamótununum við Njarðargötu þann 14. júlí síðasta sumar.

Ekki vildi betur til en svo að árekstur varð við bifreið sem var ekið suður Njarðargötu en sjúkrabifreiðin stöðvaðist á vinstri hlið um 29 metrum vestan við árekstursstað.

Ökumaður sjúkrabifreiðarinnar neitaði sök og krafðist sýknu. Sagðist hann hafa verið í útkalli vegna manns með hjartsláttartruflanir vestur á Hagamel og verið á um 60 kílómetra hraða þegar áreksturinn varð. Var útkallið flokkað sem forgangur tvö sem þýðir að líf sé mögulega í hættu.

Í niðurstöðu dómara kemur fram að ökumanninum hafi borið að sýna sérstaka varúð þegar hann ók yfir gatnamótin. Hraðinn hafi ekki mátt vera meiri en svo að hann gæti stöðvað tafarlaust fyrir umferð úr þverstæðri átt. 

Taldi dómari að 60 kílómetra hraði hafi verið of mikill og því hafi ökumaðurinn ekki sýnt þá varúð sem honum bar að sýna við akstur um gatnamót.  Breytti engu um niðurstöðuna að hann hafði uppi hljóð- og ljósmerki á sjúkrabifreiðinni. 



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.