Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, segist ekki skilja það hvernig Ólafur Ólafsson, sem kenndur er við Samskip, sé aftur kominn með eignarhald á Samskipum. „Hefur hann gert upp sínar skuldir? Er hann laus allra mála gagnvart samfélaginu? Finnst honum sjálfum hann vera laus allra mála fyrr en hann er búinn að gera upp við íslenskt samfélag,“ spyr Ögmundur um málefni Ólafs.
Ögmundur tekur dæmi. Hann segir að ef hundrað milljón króna skuld yrði gjaldfelld á sig og hann ætti ekki peninga yrði hann gjaldþrota. „En maður sem skuldar 50 milljarða, hvernig má það þá vera að hann geti keypt eignir fyrir milljarða - rétt eins og skuldin skipti engu máli,“ spyr Ögmundur á heimasíðu sinni.
Þótt að eigendum Arion banka kunni að vera sama þótt að menn eins og Ólafur og fyrrverandi eigendur Haga þá segir hann þjóðinni ekki standa á sama.
„Það stríðir gegn réttlætiskennd fólks að heimili fólks séu gerð upptæk vegna skulda á sama tíma og milljarðaskuldir eru afskrifaðar og forgjöf veitt til að komast aftur að kjötkötlunum.
Skyldi Finnur Sveinbjörnsson og félagar hafa íhugað þetta? Ef ekki, þá er komin ástæða til að þeir geri það. Það er nóg af pottum í skápunum,“ skrifar Ögmundur.
Hann segir að herða þurfi löggjöfina þannig að þeir sem ekki hafi það í sér að sjá að sér verði látnir gera það með lögum.
„Og bankarnir koma okkur öllum við. Það höfum við fengið að reyna. Þess vegna eigum við - samfélagið - rétt á að vita hvað þeir eru að aðhafast og að sjálfsögðu hverjir eiga þá. Ef þeir ekki upplýsa það að fyrra bragði, þá eiga þeir að þurfa að gera það samkvæmt lagabókstaf. Við ætlum ekki að endurtaka leikinn.
Ekki aftur! Það er komið nóg,“ skrifar Ögmundur að lokum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna