Austurríski milljónamæringurinn Karl Rabeder ætlar að gefa frá sér hverja einustu krónu af rúmlega sex hundruð milljóna króna auðæfum sínum. Ástæðan er sú að peningarnir hafa gert hann óhamingjusaman.
Rabeder, sem er 47 ára gamall, ætlar að byrja á því að selja lúxushús sitt í Ölpunum sem metið er á tæpar 300 milljónir króna. Þá ætlar hann að selja sveitabýli sitt í Provence í Frakklandi og sautján hektara lóð sem sveitabýlið stendur á en eignin er metin á um 130 milljónir króna. Rabeder hefur þegar selt sex svifflugvélar í sinni eigu fyrir 70 milljónir og sérlega vel útbúin Audi-lúxusbíl.
Rabeder ætlar svo að láta ágóðann af sölunni renna óskiptan til góðgerðarmála en í samtali við Daily Telegraph segist hann þó ætla að kaupa sér lítinn fjallakofa í nágrenni Innsbruck í Austurríki til að eiga þak yfir höfuðið.
„Hugmyndin er að eiga ekkert. Peningar skapa ekki hamingjuna,“ segir hann og bætir við: „Í langan tíma hélt ég að þeim mun ríkari sem ég yrði þeim mun hamingjusamari yrði ég. Ég kem úr fátækri fjölskyldu þar sem reglurnar voru þær að maður þyrfti að vinna mikið til að skapa sér góðar tekjur. Þetta gerði ég í mörg ár,“ segir hann.
En skyndilega áttaði Rabeder sig á því að peningar skapa ekki hamingjuna og hann væri í raun búinn að þræla sér út til einskis. Hann segist hafa áttað sig þegar hann fór í sumarfrí með eiginkonu sinni til Hawai þar sem hann dvaldi á fimm stjörnu lúxushóteli.
„Þá kom stærsta sjokk lífs míns. Þá áttaði ég mig á því hversu hræðilegur og tilfinningalaus þessi fimm stjörnu lífsstíll var. Á þessum þremur vikum eyddum við öllum þeim peningum sem við gátum eytt,“ segir hann. Eftir að hafa selt hluta af eigum sínum segist Rabeder loksins vera við það að vera frjáls og segir hann það vera mikinn létti að vera ekki ríkur lengur. Þrátt fyrir það segist Rabeder skilja þá sem sækjast eftir því að eiga peninga - og það mikið af þeim.
„Ég hef engan rétt á að gefa öðrum ráð. Ég fylgi bara eigin sannfæringu.“




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu