ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Egilsstaðir: Enn einn köttur Kristins drepinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:58 › 9. febrúar 2010
Kristinn Kristmundsson.

Kristinn Kristmundsson. Gunnar Gunnarsson.

Læða Kristins Kristmundssonar var drepin á Egilsstöðum fyrir níu dögum síðar. Kristinn fann læðuna um tvö hundruð metra frá verkstæði sínu á Egilsstöðum að því er fram kemur á vefnum austurglugginn.is. Kristinn hélt í fyrstu að hún hefði verið skotin en við krufningu kom í ljós að hún hafði verið drepinn með oddhvössu verkfæri sem stungið var langt inn í höfuð hennar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem köttur í eigu Kristins er drepinn. Árið 2004 var skotinn köttur sem Kristinn átti. Atvikið var kært til lögreglu. Árið 2007 var enn einn köttur í eigu Kristins drepinn, en sá var drepinn með eitri.

Kristinn, sem er betur þekktur sem Kiddi í Vídeoflugunni, hefur því eins og gefur að skilja miklar áhyggjur af kattaraðmorðingja á Egilsstöðum. Læðan sem var drepin fyrir níu dögum átti kettlinga en einn af þeim hvarf með henni og hefur ekki fundist.

Kristinn segir lögregluna engu nær í rannsókn málsins. Hann segist í samtali við austurglugginn.is, geyma alla sína ketti læsta inni og hleypi þeim aðeins út undir ströngu eftirlit. Ástæðuna fyrir því segir Kristinn vera að hann viti aldrei hvar raðmorðinginn er hverju sinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.