Sparifé íslenskra fjárfesta sem lögðu peninga inn í píramídafélagið Finanza Forex, sem skráð er í Panama, var fryst af bandaríska fíkniefnaeftirlitinu DEA, vegna gruns um að fyrirtækið væri notað til að þvætta risastóran fíkniefnagróða. Félagið er í málaferlum í Bandaríkjunum vegna málsins. Sjóðir Finanza Forex eru nú komnir í frost eftir aðgerðir bandarískra yfirvalda.
Sigurður Örn Leósson sem er einn þeirra sem kynnti fyrirtækið hér á landi, náði að sannfæra mörg hundruð manns að leggja sparifé sitt inn í félagið í von um skjótan ofsagróða á gjaldeyrisbraski. Samkvæmt heimildum DV tók hann og fleiri sem stunduðu umfangsmikla kynningarstarfssemi á félaginu hér á landi, allt að fimm prósent í þóknun af öllum peningum sem komu inn í félagið hér á landi.
Þeir sem lögðu fé fyrstir inn í FFX græddu vel á meðan þeir sem komu síðar töpuðu öllu. Fyrrverandi gjaldeyrismiðlari segir við DV að nærri öruggt sé að Íslendingarnir hafi tapað öllu sínu sparifé.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning