Ingibjörg vill ekkert tjá sig um það hvort hún hafi fengið bréf frá rannsóknarnefnd Alþingis. Mynd Bragi Þór Jósefsson
„Ég tók þá ákvörðun fyrir mörgum vikum síðan, þegar blöðin voru að leita eftir þessu, að játa því hvorki né neita. Það er mín stefna,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, aðspurð hvort hún hafi fengið andmælabréf frá rannsóknarnefnd Alþingis.
Rannsóknarnefndin vinnur að því þessa dagana að senda út andmælabréf til þeirra sem fjallað er um í skýrslu nefndarinnar. Ingibjörg vill hinsvegar ekkert segja til um það hvort hún hafi fengið bréf frá nefndinni og kýs að halda því fyrir sjálfa sig.
Þegar Ingibjörg var spurð að því hvort hún væri áhyggjufull vegna skýrslunnar, sem á að koma út í lok mánaðarins, sagðist hún ekki heldur vilja tjá sig um það.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna