Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Playboy-kóngurinn Hugh Hefner hefur verið kærður fyrir að hafa spillt tvennum mögulegum sölum á Playboy-fyrirtækinu. Einn af hluthöfum Playboy er sagður hafa fengið nóg og kært Hefner. Er hann sagður hafa staðið í vegi fyrir sölu á meirihlutanum í fyrirtækinu því hann sé ekki viljugur til að gefa eftir allar kynbomburnar, Playboy-höllina og raunveruleikasjónvarpsþáttinn sem byggður er á lífinu í höllinni.
Staða Playboy-veldisins er ekki sögð góð í dag. Til marks um það má nefna að eitt stykki af nýjasta tímaritinu kostar 771 krónu í Bandaríkjunum en einn hlutur í fyrirtækinu var metinn á um 404 krónur í Bandaríkjunum í gær. Einn hlutur seldist á 4635 krónur árið 1999.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung