ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fastur í bílnum í þrjá daga: Hélt sér á lífi með Mountain Dew

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:47 › 9. febrúar 2010
Maðurinn drakk Mountain Dew og tókst þannig að verða sér út um nauðsynlegan vökva.

Maðurinn drakk Mountain Dew og tókst þannig að verða sér út um nauðsynlegan vökva.

31 árs gamall karlmaður frá Indiana í Bandaríkjunum var hætt kominn þegar hann festi bíl sinn í snævi þöktum óbyggðum Colorado um helgina.

Maðurinn, sem heitir Jason Pede, festi bíl sinn á fimmtudag en það varð þó ekki fyrr en aðfaranótt sunnudags sem honum varð ljós að engin hjálp væri á leiðinni. Brá hann því á það ráð að ganga sem leið lá að öðrum vegi, eða um 11 kílómetra, þar sem honum tókst að ná athygli vegfaranda sem höfðu samband við lögreglu.

Maðurinn var á leið til fjallaparadísarinnar Aspen þegar hann festi bílinn. Í samtali við bandaríska fjölmiðla segir maðurinn að hann hafi komið í veg fyrir ofþornun með því að drekka Mountain Dew.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.