ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Facebook-lýðræði forsetans

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
10:35 › 9. febrúar 2010
Þingræðissinninn. „Það hefði verið stórkostlegt lýðræði - eða hvað - en við hefðum haft verðbólguna áfram. Þjóðarsáttin hefði farið í vaskinn,“ segir Svavar.

Þingræðissinninn. „Það hefði verið stórkostlegt lýðræði - eða hvað - en við hefðum haft verðbólguna áfram. Þjóðarsáttin hefði farið í vaskinn,“ segir Svavar. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, þingmaður og sendiherra var formaður Icesave-samninganefndarinnar. Hann stígur nú fram í fyrsta skipti í 11 ár og segir skoðun sína á athöfnum forseta Íslands sem hann telur hafa framkallað stjórnkerfiskreppu. Svavar er þingræðissinni og telur brýnt að allir leggist á eitt að greiða úr þeirri stjórnkerfiskreppu sem lagst hafi ofan á bankakreppuna. Slíkt sé í þágu lýðræðisins.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands vísaði Iceavelögunum til þjóðarinnar í ársbyrjun og nýtti sér þá túlkun margra á 26. grein stjórnarskrárinnar að slíkt sé honum heimilt. Sjálfur hafði hann undirritað lögin í frumvarpsformi síðastliðið haust og var það því lagt fyrir þingið í hans nafni. Sem fullbúin og samþykkt lög frá Alþingi bar fjármálaráðherra þau upp á ríkisráðsfundi á gamlársdag og vænti undirskriftar forsetans á þeim fundi. Af því varð ekki, svo sem kunnugt er, heldur tók Ólafur Ragnar sér frest til undirritunar. Þess ber að geta að ríkisráðsfundir eru fátíðir og engin regla fyrir því að nýsamþykkt lög þurfi að undirrita á slíkum fundum.

Svavar Gestsson fyrrverandi ráðherra, þingmaður, sendiherra og formaður Icesave-samninganefndarinar, sagði í ítarlegu viðtali við DV fyrir helgina, knýjandi nauðsyn að endurskoða stjórnkerfið í ljósi þess að forseti lýðveldisins hefði tekið sér stöðu inni á vettvangi framkvæmdavaldsins.

Hluti viðtalsins féll niður, þar sem Svavar fjallaði um þátt forsetans og nauðsyn þess að endurskoða stjórnkerfið. Í þeim hluta, sem hér er nú birtur að hluta, getur Svavar þess að hann hafi unnið lengi með Steingrími Hermannssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, sem lést 1. febrúar síðastliðinn.

„Ég var með honum í fjórum ríkisstjórnum og hann var í raun og veru einn áhrifamesti maður Íslands í 20 ár, frá 1971 til 1991. Meirihluta þess tíma var Alþýðubandalagið með honum í stjórn. Hann hafði alltaf mjög mikil áhrif. Það erfiðasta á þessum árum var verðbólga. Við lukum þessum tíma með þjóðarsáttinni svokölluðu. Hún byggðist á því að allir gáfu eftir af sínum ýtrustu kröfum, atvinnurekendur og launamenn. Eftir stóð sá veruleiki að nýlega hafði verið gerður samningur við Bandalag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna um miklu meiri kauphækkanir en þjóðarsáttarsamningurinn gerði ráð fyrir. Ríkisstjórnin ákvað á þeim tíma að taka þær kauphækkanir til baka, sem hún hafði sjálf skrifað undir, með bráðabirgðalögum til þess að bjarga þjóðarsáttinni.

Ljóst var að þessi lög nutu ekki stuðnings meirihluta þjóðarinnar eða voru í það minnsta mikið vafamál. Það var meira að segja ekki algerlega ljóst þegar bráðabirgðalögin voru sett hvort þau nytu meirihlutastuðnings á Alþingi. Þetta var rætt veturinn 1989 til 1990 á þingi og lauk með því að lögin voru samþykkt.

Ég spyr: Hvað hefði gerst ef þessi lög hefðu verið sett í þjóðaratkvæðagreiðslu? Vegna þess að ef Facebook hefði verið til á þeim tíma hefði ég veðjað við þig hverju sem er að tugir þúsunda hefðu mótmælt þessu og þar með hefði málið verið sett í þjóðaratkvæði ef núverandi forseti hefði þá setið á forsetastóli. Hann var reyndar á þeim tíma fjármálaráðherra.

Segjum sem svo að svokallaðar lýðræðisumbætur hefðu náð þarna fram að ganga og lögin verið felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefði verið stórkostlegt lýðræði - eða hvað - en við hefðum haft verðbólguna áfram. Þjóðarsáttin hefði farið í vaskinn.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.