Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Eldri konur eru líklegri til að eignast einhverf börn að því er fram kemur í The Los Angeles Times. Vísindamenn rannsökuðu fæðingar nærri fimm milljónir barna í Kaliforníu á tíunda áratug síðustu aldar og kom þá í ljós að konur sem fæða börn eftir fertugt eru 77 prósent líklegri til að eignast einhverf börn heldur en konur undir 25 ára aldri. Konur yfir fjörutíu ára aldri eru einnig rúmlega fimmtíu prósent líklegri til að eignast einhverf börn heldur en konur á aldrinum 25 til 29 ára.
Vísindamennirnir fundu minni samsvörun þegar kom að aldri karla. Segja vísindamenn að tilhneiging kvenna til að seinka barneignum hafa aukið fæðingartíðni einhverhverfra barna síðastliðin ár.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu