Bandaríska kvikmyndafyrirtækið Warner Bros. hefur ráðið Christopher Nolan, leikstjóra Batman-kvikmyndarinnar The Dark Knight, til að verða ráðgjafi við framleiðslu nýjustu kvikmyndarinnar um Superman. Ekki er vitað mikið um söguþráð myndarinnar er talið er nær öruggt að hún verði ekki beint framhald af síðustu kvikmynd um ofurhetjuna sem nefnist Superman Returns og gekk ekkert alltof vel í kvikmyndahúsum.
Myndin væntanlega um Superman er þó einungis á frumstigi en Warner Bros. fyrirtækið vill þó hefja tökur sem allra fyrst. Verði framleiðslan ekki hafin af fullri alvöru á næsta ári Warner Bros. átt yfir höfði sér kæru frá erfingja Jerry Siegel, annar af höfundum Superman, vegna samningsbrots. Málið versnar þó til muna ef framleiðslan verður ekki hafin árið 2013 því þá geta erfingjar Jo Shuster, annar höfunda Superman, einnig kært Warner Bros. fyrir samningsbrot.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung