ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Bresk yfirvöld vara eldri konur við: „Notið getnaðarvarnir“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:47 › 9. febrúar 2010

Gífurleg fjölgun óléttu á meðal kvenna yfir 35 ára aldri í Bretlandi hefur orðið til þess að bresk yfirvöld hafa séð sig knúin til að senda út tilkynningu til kvenna um að aldur þeirra komi ekki í veg fyrir að þær geti orðið óléttar. Segir í tilkynningunni að margar konur yfir 35 ára aldur noti ekki getnaðarvarnir því þær telja sig ekki geta orðið óléttar aldursins vegna. Þetta sé að færast í aukanna á meðal kvenna á fertugs-, fimmtugs-, og sextugsaldrinum í Bretlandi.

Hefur þetta leitt til fjölda margra „slysa“ eftir einnar nætur gaman hjá konum á þessum aldri. Því hafa bresk yfirvöld beðið konur á þeim aldri að nota getnaðarvarnir þegar kemur að kynlífi, því þær geta svo sannarlega orðið óléttar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.